skondið hvað svona þung mál einsog ég var að skrifa um í dag skapa engin komment, það gera afturámóti skrif um þrif, mataruppskriftir og teiknimyndasögur.
9.9.03
Ég tók eftir því að sumar myndir sem barnaníðingum ( ferlega er þetta óþjált orð) finnst gaman að skoða eru jafnvel venjulegar myndir af fáklæddum krökkum eða berrössuðum, myndir sem hæglega er hægt að fá á netinu, myndir sem fólk setur á vefsíður sínar eru þannig séð saklausar. En í þessu samhengi eru þær það alltíeinu ekki. hvað skal segja... ég allavega er ekki að fara setja inn myndir af krökkunum mínum í sundi eða að striplast... tilhugsunin um einkvern sveittan sem situr og safnar myndum af netinu af fáklæddum börnum á öllum aldri fer ekki frá mér eftir að hafa sé þennan þátt.
Ég sá hrikalegan þátt í danmörku fyrir ca 3 árum, það var fréttamaður sem fór underkover og gekk í samtök pedófíla þar. Barnaníðingar í dk eru sumsé með félagasamtök og fundi og gefa út tímarit og hafa ýmsa starfsemi í frammi. Þetta er alveg löglegt. Fréttamaðurinn var með falda myndvél og spjallaði við karlana og mætti á fundi og skoðaði myndir með þeim og tók þetta allt upp. Það var alveg yfirgengilega furðulegt að heyra að þessir menn eru þess gjörsamlega fullvissir að börnin séu alveg með á þessu öllu saman, að börn vilji alveg endilega stunda allskonar kynlífsathafnir og þeim finnst börnin beinlínis alltaf vera að reyna við þá.. þessa sveittu karla.. gleymi þessu aldrei. Eftir að þátturinn var sýndur kom talsmaður samtakana í viðtal í fréttaþætti, hann hélt að nú væri lag að opna augu almennings fyrir þessari augljósu staðreynd.. að börn eru kynverur með allksonar langanir í þá veru! Hann þurfti að skipta um nafn og heimilisfang næsta dag...mesta furða að hann skildi ekki verða drepin á leiðinni úr þættinum.
8.9.03
jú og hrotur.
Skrapp í skólan og aftur í vinnuna og geispa í gegnum þetta allt. Sem fyrr er það annað fólk sem á í tilfinningasveiflum, ég sigli lygnan sjó. Skildi ég aldrei sökkva?
Þessi helgi verðskuldar nokkur stikkorð; barnapössun, barstóll, cradle of filth, ikea, jólatré með hatt, svartklæddar konur, hækja, gömul gleraugu, sögusmettur.
7.9.03
þvílíka ævíntýrahelgi hef ég bara nokkrum sinnum áður upplifað, mjög gaman, allt eikkað svo óvænt og opinskátt og afhjúpandi og allir svo krúttlegir og ljótir og sætir og viðbjóðslegir að það hálfa væri nóg. .. hey.. þið vitið alveg hver þið eruð.. ( og hvort þið voruð ljót og viðbjóðsleg eða krúttleg og sæt)
6.9.03
5.9.03
Já þarna var hrikaleg lesning. Var að lesa grein í National geographic um þrælahald, nútíma þrælahald. Þar er svakalegt komment frá Milorad Milakovic þræla/hóruhaldara " Is it a crime to sell women? They sell footballers, don´t they?" Hann vildi fá skaðabætur fyrir stelpurnar sem voru frelsaðar frá hóruhúsunum hanns. Þær kostuðu jú skildingin, keyptar frá Moldavíu, Hvíta rússlandi og viðlíka.
Það eru stanslaus óhljóð og yfirgengilegur hávaði hérna í dag. Sírenur og barsmíðar, ferlegar vinnuaðstæður
Sonur minn fór með varalit og maskara í skólan í dag. Hann mun ganga meðfram veggjum ellegar sæta þungri refsingu böðla skólans. Soldið brútal þesi innvígsla
Ég er sátt við þetta nýja template, ætla samt að láta arkívin standa í rauðu. Þessi rauði litur var eitthvað svo einkennandi, það var engin annar með svona rautt blogg. Ég er nebbla gallhörð á því að hvert blogg eigi að vera með einhverja sérstöðu svona í lúkki, þó ekki væri nema annar litur eða eitthvað. Öll þessi eins hvítu blogg sem allir eru með núna finnst mér lásí, ekkert sem greinir þau frá hvert öðru.
4.9.03
cræst.. nenni ekki að laga meira í dag, þetta er soldið kúl lúkk, kannski ég skipti bleika litnum út seinna
Mamma datt og meiddi sig í gær. Var með henni í 3 tíma á spítalanum í gærkveldi. ekki var það nú gaman, henni varð svosem ekki mikið meint af en það eru ákveðnar krossgötur sem maður stendur á sem fullorðin þegar mamma getur ekki passað mig, heldur þarf ég að passa hana.
3.9.03
Ætli ég losni við tilfinningasemi meðborgara minna í skólanum? jæja.. ég er allavega á leiðinni niðrí Odda
Ég er voðalega eitthvað huxi þessa dagana, það er svosem ekkert sem hvílir sérstaklega á mér persónulega. frekar að ég sé huxi yfir örlögum fólks í kringum mig. Það hittist þannig á að ég er vitni að rosalegum tilfinningasveiflum hjá öðrum þessa dagana og þá er ég þakklát fyrir mitt jafnlyndi og svona sigla gegnum lífið attitude.
2.9.03
Já þetta er skrýtið, hvað er þetta með ykkur karlmenn, ég hef nebbla heyrt karla segja að ástæða þess að þeir urðu hrifnir af einkurri konu var sú að hún virtist hjálpar þurfi. Svona að bjarga henni dæmi. Það fannst þeim rosalegt turn on og aðlaðandi... og þetta eru frekar ungir menn sem um ræðir. So I am confused.
Ég er ekki að leita kærasta, en það væri nú gaman að vita hvað virkar best svona þegar/ef þar að kemur. Maðurinn sem vill gáfuðu konurnar hefur nebblega sagt að ég sé gáfaðasta kona sem hann þekkir, spurning um að spila sig soldið meira dumb, væla meira, svo að gaurarnir vilja bjarga mér frá sjálfri mér.
I´m confused, maður sem ég þekki segir að gáfur í konu séu mesta turn on-ið. hann vill bara vera með rosa gáfuðum konum, og vill meina að flestir karlmenn séu sammála. En svo þekki ég margar alveg gífurlega gáfaðar konur sem meira að segja eru líka fallegar og þær eru allar einhleypar, eða mesta lagi í slagtogi við aula. þær segja að karlmenn séu skít-drullu hræddir við einmitt gáfurnar. Þegar þeir fatta að þær eru nú kannski með allan fjandan á hreinu og jafnvel með carrier og íbúð og allt mögulegt, þá bakka þeir. So.. hvað er málið? Vilja karlar klárar og sjálfstæðar konur eða ekki?
1.9.03
Netið hrökk í lag heima. það var mjög gott að sjá Singapore Sling loksins.
Þema kvöldis var soldið slæmí, þeir voru þarna í röðum og við Alva gátum ekki annað en hlegið að þessu.
30.8.03
Netið er dautt á görðunum, hvur djöfullin er í gangi. Jæja, fer bara og kaupi kleinuhringi og kók. Tónleikar í kvöld?
29.8.03
geispigeisp. úff, um leið og bossin er farin er ég að sofna hérna.
Mikið er pirrandi að fá útborgað á mánudag, þetta verður löng og blönk helgi oj.
kannski ég fari og kíki á nýjasta sprotan á ættartrénu, hann Aron Blæ
Ég er með teljara á heilanum. Nú er bravenet orðin rosa flottur og allt. Mér finnst smjög skondið að geta séð ef það eru einhverjir íbúar hjónagarða sem lesa, svo sé ég líka alla með fjöltengi, I love my counter.
28.8.03
Sko hann Stebbi var alveg fullklæddur í þesum draumi. Það er af sem áður var þegar mig dreymdi svo oft sturlaðan sora nótt eftir nótt. Ég var stundum að vilja segja þáverandi eiginmanni mínum frá þessum draumum en hann frábað sér þær frásagnir, bað mig vinsamlega að leita sálfræðings.
27.8.03
sorry we prolly wouldnt fuck
would we fuck? (gurls only)
brought to you by Quizilla
Frábær könnun
Ég var í viðtali í morgun, og svo spurði manneskjan " ertu skyld blabla?", já sagði ég, nema að þá brosti manneskjan og varð voða meira kammó og gerði svo svona stórt merki, kross og krot á blaðið með upplýsingunum um mig. Til hvers ætli það sé? Þegar farið verður yfir blaðið, munu þá allir taka sérstaklega eftir þessu kroti, og vita að það þýðir eitthvað sérstakt, eða er þetta bara fyrir þessa persónu, til að hún viti að þarna er eitthvað spes eintak á ferð.. sveimérþá.
Afhverju er ég að pæla í þessu
Jæja elskurnar, ég elska ykkur öll vitiði það. Alveg.
morgunin fór í skólastúss bæði yngri og eldri heimilismeðlima. Annars er bara rólegt yfir.
Hérna fyrir aftan mig er poki fullur af kartöflum og blaðsalati, eða karpellum einsog sumir segja/skrifa.
Þið verðið að lesa hvernig fía spjaraði sig í borginni ókunnu, ja eða bara lesa í ljóðin
26.8.03
Ég skil ekki orðin í þessari skýrslu hérna, shape memory metals? actuators? thermo mechanical retraining of the SMA´s?
Já við erum frjósöm þetta klan. Mér finnst nú að ég hafi skilað mínu ágætlega og ætla ekki að bæta við börnum. Ég hef gert mitt til að viðhalda hvíta stofninum so to speak. Sá annsi góða umfjöllun í 60 minutes á stöð2 fyrir stuttu. Það kom á daginn írannsókn sem kona ein gerði meðal vel stæðra og menntaðra kvenna í USA, að þær standa flestar í þeirri trú að hægt sé að eignast börn alveg fram úr fimmtugu. Þær voru sko ekki að spá í að reyna að eignast börn fyrr en sona í fyrsta lagi um fertugt og voru algerlega óvitandi um að frjósemi kvenna fer hraðminnkandi uppúr þrítugu og eftir 37 ára aldur er mun erfiðara að verða ófrísk og hverfandi líkur eftir fertugt. konur sumsé vað í þeirri villu að læknavísindin geti bara sisona hjálpað til ef eitthvað þarf, en málið er víst að við gervifrjóvgun þá eru notuð egg úr annari konu oft á tíðum.. og það er nú kannksi ekki aveg það sama. allavega, mikil synd ef konur eru svona fáfróðar um hvernig systemið í þeim virkar. Við fæðumst bara með ákveðin fjölda eggja sko og þau týnast og fara jafnt og þétt alla tíð, og engin koma í staðin... Hjá körlum er jú allt annað uppá teningnum, þar sem þeir framleiða nýtt og nýtt sæði.. en það gerum við barasta alls ekki.
25.8.03
22.8.03
kvöldið í kvöld og morgundagurinn allur verður helgaður börnunum. þau fara annað síðan, veit ekki hvenær en örugglega þegar komið er fram undir kvöld. Þegar þau verða farin fer ég eitthvað annað líka
20.8.03
Nag nag nag, æji mig vantar að redda smá peningamálum tjum tjum, nennessiggi, er ekki nóg að vera vinna 9 til 5, sjá um börnin, stunda smá félagslíf.. þarf ég nú líka að fara í banka og hringja og fylla út eyðublöð og blabla. ohhh.. bögg
Ohh ég þoli ekki fólk með lúxusvandamál. Að fara á fyllerí og kvarta svo yfir blankheitum t.d. já að ég tali nú ekki um grannt fólk sem kvartar yfir að það sé feitt, og fólk sem á engin börn og finnst það hafa mikið að gera.. ha! grow up þadna
19.8.03
Ahh ég vildi stundum óska að ég væri að vinna ein og innilokuð
Hversu mikið mál er að setja upp kaffivél og panta plastkassa..
Grísabuffið bætir og kætir
Ég stóð ca 1 meter frá Viggo Mortensen fyrir örfáum tímum. Strákurinn hanns var a sparka í eina tösku og a leita að annari og Viggo var alveg pollrólegur með argan ungling og týndar töskur á leifstöð. Ég var að spá í hvort ég ætti að garga og kasta mér á manngreyið, í það minnsta vekja athygli flugvallargesta á hver þessi þreytulegi faður í krumpuðum jakkafötum væri, en fannst ekki vert að eyðileggja fyrstu mínúturnar á íslandi fyrir mannkertinu.
18.8.03
það væri óskandi að manni lægi alltaf svona mikið á hjarta einsog fyrir helgi. tja.. eða að hægt væri að blogga um allt það sem á hjartanu liggur án þess að eiga á hættu að styggja skepnur og menn eða menn sem eru skepnur.
En ég hef það fínt, ferlega syfjuð reyndar, og fingurnir láta ekki að stjórn. Er a bögglast í gegnum skýrsluskráningar með the dewey decimal classification system mér til halds og trausts . Vildi að ég hefði unnið betur í flokkunarverkefnunum þegar ég var í Danmarks Biblioteksskole. í staðinn hékk ég alla daga á kaffistofu nemendafélagsins með Frederik og öðrum. Hvað skyldu Manuel og Lunde vera að gera núna eða Stine blondine?
þriggjastafa nöfn og gælunöfn eru náttla kapítuli út af fyrir sig. Bara svona í svipin þekki ég þessi; Eva Una Örn Ari Ulf Hel Kat Fía Box Jón Bre Dís Rós Már Óli Þór Ósk Eir
Já því segi ég það. Það sem ég gerði um helgina með börnunum var skemmtilegra en það sem ég gerði ein. Eða þetta laugardagsdjamm var svona djamm þarsem það var mjög gaman meðan á því stóð en svo eftirá finnst mér að ekkert hafi verið varið í það... meikar ekki sens. En fólkið var frábært, Aska og aðrir.
Alva kemur á morgun.. vei..
15.8.03
fat fax fas far tré fól tóg fát líf fag þel húm ham sól dag arg örg her hór hex hló hlé hug hús hýr hör þró fló smó skó dró dám dóm hró afl flá gul sló hel hól hol ást van gló kóf oss föl afi mun man vit ryk kol ill öll jór kal kló kýr kyn kýs arf stó ost ofn orf óst þýð þor frí fró þor lás rás ráf káf kál ról ból nóg
Ákvörðun í kjölfar bloggpirrs. Ég er alveg til í þessa blogg athygli hvort sem hún er jákvæð eða neikvæð, og er svona þegar upp er staðið ekkert sérstaklega hörundsár. En ég ætla ekki að blogga að ráði um börnin héðan af. Hef oft verið að huxa um þetta.. börn og fjölmiðlar og fleira í þeim dúr. Þau hafa ekkert haft um það að segja að ég sé að skrifa um þau og hafa ekki fengið að ráða því. Það er ekki víst að þau sem fullvaxið fólk hafi neitt gaman af því að til séu upplýsingar um þeirra hagi sem börn/unglingar. ekki er víst að þau vilji neina athygli út á að vera mín börn eða pabba síns. þau eru of ung til að vita það í dag hvað sé fyrir bestu og ég verð að taka ábyrgðina. Úlfur er orðin nógu gamall til að velja sjálfur og ef hann vill halda áfram með sitt blogg er það náttla bara gaman.
Flott mynd úr rafmagnsleysinu í bandó ( já mar lætur sig öll orkumál sko varða ), spáið í því að vera föst í rússibana sem stoppar alltíeinu.. ái
14.8.03
Ég var búin að gleyma hvað svona neikvæðni, vandamál og væl eru vinsælt lesefni. Lesendafjöldi stefnir í met í dag. en það er auðvitað ágætt og er auðvitað besti vitnisburðurinn um ágæti míns bloggs ekki satt... Ef mér er ekki sama þ.e.a.s. Sem mér er... eða ekki.... eða stundum og stundum ekki.
En ég er í vondu skapi útaf öðru en bloggi í dag. Ef bloggað skal um það verður það allt að vera voða dipló og án þess að nefna nöfn aþþí sumir þola ekki að vera nefndir á nafn af sumum. boring
meira um bloggpirr. það kemur sárasjaldan fyrir að fólk segist lesa bloggið mitt to my face ( held ég hafi lent í því kannski tvisvar eða þrisvar ). Það sem hefur verið að gerast er að fólk út í bæ og út um lönd er að tala við fólk sem þekkir mig og spyrja út í mig og mitt blogg. Og er með skoðanir auðvitað. Ekki við öðru að búast og ekkert við því að segja svosem. þá þarf ég bara að gera upp við mig hvort mér sé nákvæmlega sama hvað öðrum finnst eða ekki.
Hef svosem löngum haldið því fram að mér sé sama, en kommon.. hverjum er það í alvörunni alltaf? Er það ekki bara hroki að halda því fram...
Það nýjasta er t.d að vinur sonar míns sagði honum að hann hefði fundið gamla bloggið hans og mitt líka. Veit ekki hversu vel ég fíla það að vinir hans séu að lesa hér.
Raunar sagði ég við vinkonu mína um daginn að það væri best að þeir einu sem lesa séu ókunnugir mér með öllu.
13.8.03
Þetta bloggdæmi pirrar mig á stundum. Undanfarið er það svona margt smátt í sambandi vð þessa bloggveröld sem hefur böggað mig. Svo ég nefni dæmi, kunningjakona mín frá fornri tíð var dyggur lesandi minn í byrjun, um daginn hitti ég hana og hún var öll á undanflæmingi og sagðist vera sko löngu hætt að lesa bloggið mitt, hún vildi ekki segja mér hversvegna. Ekki jákvætt.
Annað atriði í sömu viku, vinkona mín hitti vinkonu sína sem ég þekki ekki að ráði, sú hafði verið að lesa þessa síðu og spurði vinkonu mína hvort hún Helga væri svona rosalega einmana og þunglynd. Rugl.
Fleira í þessum dúr. t.d. hefur vinkona mín alltaf verið ósátt við þetta blogg mitt, finnst þessi manneskja sem skrifar vera allt önnur en hún þekkir. Hún skilur ekki hvaða hvatir liggja að baki þessari Hel sem hér er. Systir mín hefur gefið til kynna svipaðar skoðanir. æji
Ofaná þetta þá er Það er ekki sérlega þægilegt að vita að sumt fólk sem les þessa síðu, les hana af neikvæðum hvötum, þetta á við fólk sem tengist fólki sem þekkir mig en þekkir mig ekki sjálft. Þau eru í raun að hnýsast og forvitnast og leita að einhverju um mig og aðra og bæta þannig inní eitthvað púsluspil sinna eigin hugmynda um hvernig ég er. Sem virkar ekki því að allt það púsl er frá upphafi rangt.
Mér virðist það versta við þetta blogg vera að þetta er svo andskoti lítið land og allir hafa svo ákveðnar hugmyndir um mann og fólk er fljótt að dæma mann útfrá einhverjum skrifum. Skrifum sem eru misalvarleg og missönn. Ein færsla skrifuð í fýlu eða kaldhæðni og viðkomandi er orðin þunglyndur og ég veit ekki hvað og hvað. ( fyrir utan það að fólk notar orðið þunglyndi yfir eitthvað sem á ekkert skylt við raunverulegt þunglyndi, ég þekki fólk sem berst við þunglyndi og wel.. það er allt önnur saga)
Enga hjálp að fá þarna úti sumsé. En ég sat í 5 tíma í gærkvöldi og nótt við að slást við sýkinguna í tölvunni. Lagaði talsvert og vona að þessi shutdown ormaskilaboð komi ekki aftur.
Held mig heima í dag með eigin sýkingu og kvefaða krakka.
Ormavírusin er út um allt tölvunni okkar. ég keyrði þetta wb tool sem gerði ekki rassgat. sagði að lokum að ormurinn væri ekki í tölvunni. um leið er ég að fá upp glugga á 5 sek. fresti um sýkta fæla og allskonar.. . drasl!
einhver önnur tól sem virka.. anyone?
12.8.03
11.8.03
Alva á tónleikum í CA, metallica, linkin, limp og deftones, djís.. væri gaman að vera þar. Þetta hefur hún að segja um þungarokkara í CA : "California metal heds are hard core, long stringy hair, pot growing, missing teeth skanks". Hljómar ágætlega finnst mér
Það er gaman að mæta í vinnuna eftir svona fjölbreytta helgi. Reyndar er ég svo heppin að það er alltaf gaman að mæta í vinnuna. Krakkarnir skemmtu sér vel í húsdýragarðinum, skondið þetta nýja tæki. Svo fór Una í afmæli þangað en ég og Hörður fórum í fjölskyldukaffiboð. Box hringdi og skammaði mig soldið, eða svona bara soldið fyrir hvað það er langt síðan ég hringdi. En við erum báðar á jaðrinum, það erum við sammála um. Enda er allt normalitiy gengið sér til húðar.
10.8.03
Hæfileg blanda af fjölskyldu, börnum, vinum og djammi þessa helgi. Krökkunum fannst mjög gaman að sjá gaypride gönguna, Höddi fór svo með vininum að leika en Una vildi vera lengur í bænum. Hún nýtur sín afskaplega vel á kaffihúsum og veitingahúsum, verður svona bæjarrotta einsog ég. Herði finnst allt svona mjög leiðinlegt. Hann nýtur sín best heima við einhvern skjá, í friði frá áreiti, eða að leika með sínum nánustu vinum. Held að hann eig þetta sameiginlegt að einhverju leiti með föður sínum. Núna er það húsdýragarðurinn og ammæli hér og þar
