Verst að við sáum enga tóneika, ekkert rokk.. ohh well.. Sit og er að bíða eftir að einkur smápeningur ruslist inná reikninginn minn svo að ég geti ferið með Hörð í klippingu. Hann er með mjög sérkennilega tilfinningu fyrir hárinu sínu. Hann finnur það vaxa og þegar það er ekki alveg stutt lengur kvelst hann bókstaflega, einsog hann finni það liggja á höfðinu og stingast út um allt. Hann öskar líka þegar er verið að þurka á honum hárið, já og sjálf klippingin er alltaf einstakt kvalræði fyrir hann. Þetta er svona partur af raunveruleika einstaklings með heilaboð og starfsemi sem er eikkvað öðruvísi en okkar hinna flestra. He is aware of his hair
31.3.03
Jæja, ég nældi mér í flensu svona til at det ikke skulle være lögn. Þannig að ég og min danske ven erum bara búin að hanga heima eða á kaffihúsum. Það er raunar fínt, mjög næs, vinir mínir hafa litið við og verið með okkur. Minnir mig á það, frú Fender er byrjuð að blogga. Alveg örugglega ný vídd í bloggi þar, allt vaðandi í ljóðrænu og innyflaskoðun.
Djöfull er ég leiðinleg, sona ég hitti þennan og hinnblogg eru algjör öskrandi viðbjóður og hörmung. Geri þetta aldrei aldrei aftur.
30.3.03
Nei ekki komumst við inná zirkus þarna á föstudag. Röðin var killer og Freddy nennti als ekki að hanga í henni í kulda og skít. En við fórum annað og hittum m.a. þennan og þessa og hann líka, og eikkvað af öðrum kommúnistum. Svo var það kaffibarinn þar sem B var að hætta á barnum og sturtaði í okkur bjór, hann stóð varla í lappirnar þessi elska. Ekkert kvöld endar rétt nema farið sé á 22, þar sem þessi Brainpolicemaður var við annan mann. Geðgt fúll aþþí Danskagaur finnst þeir líkjast Audioslave.
28.3.03
Una veiktist líka en núna eru þau bæði að skríða saman. Er að fara á eftir að ná í Fredda á flugvöllin, og svo les ég um þetta hrikalega slys í morgun... úff..
26.3.03
Skarlatssótt skarlatssótt, sonur minn 10 ára er með skarlatssótt. Afhverju hélt mar að hún væri einkur sjúkdómur úr forneskju? Það er ekki bólusett við skarlatsótt og hún er alls ekki útdauð. Hérna áður fyrr var fólk smeykt við skarlatssótt, mamma mín krossaði sig þegar ég sagði henni fréttirnar, samt er þessi veiki ekki hættulegri en aðrar kokkasýkingar þannig að ekki veit ég hvað málið var. Þetta er reyndar bráðsmitandi fjandi.
Hjálp! Hörður er ekkert að lagast.. nú er það læknavaktin babúbabú, þetta kostar allt peninga og að fá lánaða bíla og veeeees í öðru veldi. En ef hann þarf penciliín.. well þá þarf hann pencillín!. en það er gott að hafa Daddyhurricane innan handar þó að hann sé afskaplega bíssí pönkari um þessar mundir.
Já og skrýtið fólk takk, ég vil absolútt hafa bara stórskrýtið fólk í kringum mig. Það hefur tekist ágætlega hingað til, en sumir eru ekki að standa sig eru allsekkert skrýtnir eða halda að þeir séu skrýtnir en eru það ekki, margir líta bara út einsog þeir séu skrýtnir en eru svo mjöög óskrýtnir og leiðinlegir.
Nehh það er reyndar nóg af fólki út um allt, hitti alltaf einkurskonar lið í hver sinn sem ég fer út fyrir dyr. Á mánudag fór ég í bónus og hitti svo Moonboy og Bibbisen, í gær fór ég aðeins á laugaveg og hitti Finnsku frúna, mjög góðar fréttir hjá henni. Svo kom Fellibylur og líka mamma og pabbi. .. Já já nóg af fólki, en er það rétta fólkið?
Ég vil bara hafa það skemmtilegt þessa daga, langar bara að sjá fólk og vera innan um fólk, alveg sama hvaða fólk. Hvar er eikkvað sætt fólk ha?
25.3.03
Ég vil lemja einhvern, það er það sem ég vil.
MMmmm.. nei auðvitað ekki, vil bara hraðspóla aðeins yfir 3 til 4 daga til að setja daginn í dag og á morgun sem lengst burt í svarta gleymsku. En er það ekki annars kúnstugt að emmit vegna þess að ég skrifa hérna þetta blogghelvíti þá er allt hér niðurskrifað og mér til ævarandi ( eða þangað til ég deleta þessu drasli) minningar og háðungar... gaman...
Djöfuls helvítis andskotans djöfull, ég er komin í fílu! Leiðindi og leiði og fíla, ég vil.. ég vil...
24.3.03
Hörður er komin með rauð útbrot í andlitið og búkin, hitin mjög hár og hann er afskaplega slappur og pirraður. Veit ekki hvaða veiki þetta er, var að lesa um um eitthvað sem heitir 5 barnasjúkdómurinn á doktor.is, gæti verið það. Myndi vilja fara með han til læknis á morgun, verð þá að fá lánaðan bíl og peninga.. ach.. ves ves!
Hörður aftur veikur, ég aftur heima með hann. Hentar mér sosem ágætlega í dag að hangsa heima, er hálf eftir mig eftir svefnlitla helgi. Ahhh.. það var meira gaman að labba heim úr bænum á föstudaginn heldur en laugardaginn, á laugardaginn var ég ein en ekki á föstudaginn nebbla. En vó... Frederik fra danmark er að koma á föstudag, hann stoppar stutt núna, held að allir dagarnir séu komnir með prógram af einkurru tagi. Þetta verður sona djamm, tónleikar, matarboð og náttúruskoðun í hrærigraut. Mikið afskaplega verður gott að sjá hann blessaðan strákinn.
23.3.03
Ástleitni og viðreynsluskammti sem dyggði til nokkurra mánaða troðið í eina helgi. Ég er alveg bit, hvernig verður næsta helgi eila.
Annars hélt ég ræðu í fyrsta sinn á ævinni í gær. Til heiðurs systur minni. Ég brilleraði auðda, pabbi hrósaði mér sérstaklega fyrir góðan strúktúr á efninu.. jáá.. einusinni kennari alltaf kennari hann pabbs
Eftir ammælið fór ég so með Fíu og Maddömunni á Ölstofuna, þar var hún GS vinkona sem ég hef ekki talað við alltof lengi. Gott að hitta á hana þarna.
22.3.03
Miklir ferlegir durtar eru karlar stundum. Alveg ferlega eikkvað dónalegir og .. og já bara helvítis durtar! Sko sumir.. ekki þú þarna þú veist...
Hitti allskonar bloggara í gær. Mjög gott. En ansvíti eru Botnleðja huuundleiðinlegir, ég skil ekkki hvað málið er. Ojbarasta
21.3.03
Hörður sté á svið á bekkjarskemmtun í gær og sagðist ætla að verða tónlistarmaður aþþí hann horfir svo mikið á tónlist í sjónvarpinu. Han var líka með í leikriti, þetta var mjög erfitt fyrir hann, greinilega erfiðara en fyrir hina krakkana, en hann stóð sig einsog hetja.
Komst ekki á mótmælin í gær en fór á tónleika. Það var pönk og líka verið að mótmæla. Innvortis sökkuðu ( Flosi er sko of góður fyriri þetta band.. djí) en hin böndin voru mjög öflug.
20.3.03
Já stríð í dag eru öðruvísi en áður allvega, nú æða þeir inn með fullt af pening og dóti samdægurs til að laga allt sem þeir skemma. Koma til með að sprengja hús og brunna og allskonar og ráða svo íraska smiði og verktaka strax til að laga. Hmmm heimur batnandi fer?
19.3.03
Held að okkur Flosa muni alltaf finnast Jón Gnarr fyndin, líka þó að hann sé að bulla um pedófíliska misnotkun. Verð að reyna að hlusta eftir þessu hjá honum very soon. En í dag ætla ég að fara með börnin í bíltúr í kópavogin. Keyra þar með ömmu þeirra fram og til baka í hinar ýmsustur útréttingar, í staðin býður hún uppá kaffihúsaferð.
Já það borgaði sig fyrir mig að hringja í systur mína, hún skellti á mig ræðuflutningi í ammælið. Gaman af því.
Langar að kveikjá SKY til að horfa á stríð í beinni, en meika það ekki, nógu djöfullegt er þetta nú samt.
18.3.03
Sjúkravakt yfir syni mínum er að ganga af heilastarfsemi minni dauðri. Ég er heldur ekki þessi manngerð sem hefur yndi af því að dútla sér við heimilisstörf, svo að hér væflast ég um í algjöru reiðileysi, spjalla við strákin föla, horfi á Mtv með honum, Cartoon Network og home video af okkur þegar við áttum heima í Danmörku og vorum óskilin. Sest síðan við tölvuna öðru hverju en finnst allt leiðinlegt sem í henni er hægt að lesa eða skoða, hef ekki eirð í mér til bókalesturs eða lærdóms og nenni tæplega að tala við neinn.
17.3.03
Hitti þennan kall á laugaveginum áðan. Hann með smábörnin sín tvö og ég feginn að vera með svona stór börn sem geta núorðið verið ein heima, allavega á daginn. úff hvað ég nenni ekki neinu babystandi ever again. Fékk mér kaffi hjá Ölvu á heimleiðinni úr bónus, varla að ég drattist úr sporunum enda alveg að drepast í löppunum eftir laugardaginn, skil ekki hvað ég var að gera í þessum skóm.
Djöfuls rugl er þetta, blogger hleypti mér ekki inn fyrr en ég skrifaði eikkvað bull í sign in gluggan?
Hörður veikur hér heima. Hann á afskaplega erfitt með sig þegar rútinan er rofinn. Að vera heima á virkum degi og mega heldur ekki leika við neinn... hann er mjög ósáttur. En núna er hann að horfa á uppáhalds myndina sína, Hollow Man, ljómandi mynd og Kevin Bacon er líka ljómandi. Ég var í atvinnuviðtali áðan.. vona að eikkvað gerist fljótlega í þeim málum, þetta fátækralíf er svo slítandi.
16.3.03
En ég svaf of lítið og er að vinna.. ouch.. hausverkurhausverkur! Frú Fender bjargaði lífi mínu með lyfjagjöf , babúbabú.. Verð að þrauka til 5.. þrauka..
Dans og dufl og 22 og Hlöllabátur! Hvað er að gerast.. er árið 1991? Það vantaði bara að við Flosi værum að labba heimá Ránargötuna en ekki í vesturbæin í sitthvort húsið, algjört flashback. En sem betur fer annað fólk að djamma með heldur en fyrir 12 árum... 18 ára strákur meðal annars úff.. já og stóri bróðir hanns Bibbi blessunin. Þeir búa víst saman þarna þar sem ég sá Bibba næstumnakin, "Ert þú konan á ganginum" spurti bróðirinn. Gítarleikarinn E var líka annsi fjörugur framanaf, eða þangað til hann sá vondu konuna sem sagði honum upp í fyrra. Komst að því að hann þekkir fullt af fólki sem ég hef eikkurtíma þekkt, frænka hanns vann með mér fyrir mörgum mörgum árum t.d. Mér finnst alltaf svo skrýtið að fólk muni eftir mér löngu seinna, hef sona haldið að ég sé svo svakalega óminnistæð persóna..öhhh.. en það er líklega ekki svo ha.
15.3.03
Draslið dottið út eina ferðina enn svo ég verð bara að ímynda mér að eikkurjum finnist fúlt þegar ég skrifa ekki. Ahhh.. já, Herra hurricane treður mér á lista í kvöld svo ég megi músíkur njóta á Grandrokk...
12.3.03
Svo beið ég í röð hjá mæðrastyrksnefnd í næstum 2 klukkutíma, fólk var mjög pirrað og tens þar í dag, enda er þetta ekkert annað en helvíti á jörð að standa tímunum saman úti í rigningu í röð sem varla silast áfram til að fá nokkrar skyrdollur, kex og kartöflur. Þarna var líka talsvert af fólki sem er af erlendu bergi brotið ( hver fann uppá að kalla þau þetta?) Gömlu konurnar sem vinna þetta sjálfboðaliðastarf við að meta hvern og einn og hvort hann fái smá mat eða ekki, þær tala ekki ensku svo að ég túlkaði fyrir ungan mann sem þær vísuðu burt aþþí hann á engin börn, þær nota ekki tölvurnar sem þær eru með þannig að allt er handskrifað og yfirfarið á seinlegan hátt, sumir sem koma vilja líka aðeins létta á hjarta sínu í leiðinni,hafa kannski ekki marga til að tala við, svo eru ungu mæðurnar oft með börnin sín með sér sem eru orðin tryllt af leiðindum og ergelsi eftir allan þennan biðtima, eldri konur og lasnar eru orðnar örþreyttar á að standa svona lengi, þetta er bara eitt herbergi og fólk kúldrast þarna þegar inn er komið í þungu lofti og í dag gafst ein upp sem var búin að bíða í klukkutíma, sagði að börnin sín 3 væru í bílnum og væru líkleg orðin mjög óróleg. En Davíð Oddson sagði að þarna kæmi fólk að ganni sínu til að hamstra frítt stöff!! hann má alveg fara í röðina fyrir mig næst vesgú, og allir hanns rotnu, blindu, sjálfhverfu og djöfullegu skoðanabræður.
Súr og sýrður dagur. Ég heimsótti ömmu mína á elliheimilið í dag. Hún er nýlega flutt á elliheimili í reykjavík svo nú eru hæg heimatökin að heimsækja gömlu konuna. Reyndar sérkennilegt að spjalla við hana þar sem´hún man lítið sem ekkert, og það skrýtna er að hún virðist vita af því, segir stundum " ég átta mig bara alls ekki á neinu hérna" og fleira í þeim dúr. Spurði mig svo hvað ég ætti mörg börn og hvað þau hétu. Þegar við fórum vildi hún borga okkur fyrir að hafa komið...
Þarna á elliheimilinu vinna margir sem eru af erlendu bergi brotnir ( alveg stórkostlegur frasi ) Pólska hljómaði um gangana og íslenska með sterkum hreim. Verst að amma er svo out of it að ekkert vit er í að spyrja hana hvernig henni finnist það.
Ég sá Bibba nakinn! Ég stóð í mesta sakleysi í stigagangi hér í bæ og var að ná í Hörð, opnast þá ekki dyr og Bibbi vippar sér fram, í engu nema handklæði um sig miðjan.. tvímælalaust hápunkturinn á erfiðum degi
Ach ég sökka í aðferðafræði og tölfræði, en er að fatta þetta núna, og yfirfært á könnuna mína þá er það sumsé 1 kona sem hefur sofið hjá fleiri en 50, allar hinar eru þarna undir 10 og allir karlarnir á bilinu 20 til 40?... ha jájá eikkvað soleis... Fyndið kvað mar heyrir margt um ævina og tekur kannksi aldrei tíma í að spá í það sem liggur að baki, well live and learn...
11.3.03
Hér er annar texti sem setur fram tölur um ameríska karla og konur versus breska karla og konur, ferlega eru bretar prúðir eikkvað! Allavega.. ameríka og bretland er alveg nógu nálægt okkur til að ég samsami. En ef allir eru að plata.. well.. þá er ég hér með búin að missa trúna á allar rannsóknir! Eftirfarandi texti er þarna fyrir þá sem ekki nenna að lesa alla greinina. "Over their lifetimes, 13 percent of American men and 8 percent of British men reported having more than 20 sex partners. Among women, the figures were 2 percent for American women and one percent for British women."
Ég er ekkert annað en aumingi! Letingi og fífl, það er það sem ég er. Er einhver sem getur sparkað í mig eða refsað mér á einhvern hátt plís.
Eru annars alli búnir að merkja í könnunina? Athyglisverðar niðurstöður, hélt að íslendingar væru allir svo lauslátir.. hmm hafa ber í huga að meirihluti lesenda minnar síðu eru konur.. ætli tölurnar væru ekki hærri ef strákarnir merktu við ? Allavega sá ég breska könnun um það sama, og karlar hafa að meðaltali sofið hjá talsvert fleiri en konur. Jájá auðvitað.. þetta er náttla gömul saga
10.3.03
´Það er naumast hvað ég er alltaf í sjónlínu þórdísar ojæja, hún mun ekki sjá mig um næstu helgi nema hún komi á þungapönkstónleika með Artimus Pyle og hana nú
Kikti á kosningamiðstöð hina nýju hjá Vgrænum í gær. Annsi öflugt húsnæði á góðum stað. En það er skondið hvernig þetta er með að kjósa, semsagt systir min spurði hvað ég ætlaði að kjósa og þegar ég sagðist vera að spá í VG þá sagði hún;" Nú viltu ekki fella Davíð?"... Hmm þá er það þannig að ef mar kýs ekki samfylkinguna, að þá er mar að styðja Davíð..öhhh.. ?
9.3.03
Svo fór ég bara snemma heim (2.30),nenni ekki að eltast við fólk sem er að eltast við fólk. Hitti Ösku áður en ég fór, hún er svo mikið hörkukvendi að ég verð bara þreytt af að hlusta á hvað hún hefur fyrir stafni.. allskonar fjallgöngur, hestaferðir, matarboð, partý og ég veit ekki hvað og hvað.. og allt sama dagin! Hún er dugleg hún Aska
Vidjó af stelpum í bikini að hræra steypu, það er það sem ég sá i gær og kallast víst list. Heldur kljént finnst mér og dapurlegt svona á kvennadaginn.. fussumsvei. Hangsaði soldið á brennslunni, það er ósköp næs, sérstaklega þegar frændinn góði er að vinna. Alva var að fara í thule partý og ég fór með, þar spjallaði ég við merkismann sem hefur smíðað vél sem semur ljóð, hann hefur líka stofnað kirkju skilst mér og haldið messur á netinu. Mjög gott
8.3.03
Þessar tölur um launamun kynjana eru að gera mig vitlausa. Að huxa sér það að konur eru að meðaltali með 57% af launum karla á íslandi.. og svo er fólk sem í fullri alvöru segir að nú þurfi ekkert að vinna að jafnréttismálum lengur?? Þetta gengur hægt.. og afturábák líka
Langt síðan ég hef tjattað svona einsog í gær. ég brenndi mig svakalega á öllu tjatti fyrir nokkrum árum.. úúfff, þegar ég huxa til þess finnst mér að þetta hafi ekki verið ég sem sat tímunum saman inní einkverju prógrammi sem hét Virtual Places og týndi mér alveg..
Einsog ég hef mikla ímugust á því að kynnast nýju fólki þá er það alltaf soldið gaman, allavega svona til að byrja með. Svo veit maður aldrei hvernig fer.
T.d lentu 2 vinkonur sem mér tengjast í einkurru funky dæmi um daginn, eikkvað algjört svona mis... en þær hafa ekki talast við síðan. Æjæja já, samskipti eru frekar flókin nebblega og mér sýnist að við á mínum aldri tökum hlutunum sodlið hátiðlega stundum og eigum til að móðgast yfir hlutum sem eru kannksi ekki stórvægilegir.
7.3.03
undantekningin frá reglunni .. hmmm? Jajá það er svo kúl að vilja leðjuna til lettlands, ég minnist þess hve Finnar hafa ótrúlega oft sent svona rokk eikkvað í þessa keppni þarna. Alltaf hlegið að þeim. En tuðið um Birgittu endalaust er þvílíkt spaugilegt ( og núna er ég fallin í þessa gryfju.. djöfuls tímaeyðsla sem þetta keppnishjal er) ég sé fyrir mér þegar keppnin er þá situr liðið sem er á undirskriftarlistanum og búar á hana, heldur fyrir eyrun og óskar henni alls ills í keppninni og um alla framtíð, svo ef hún fær fullt af stigum þa verður öskrað " neiiiiiiiiiii" og allir verð geðveikt reiðir og fúlir og eikkvað " gefið danska laginu stig ekki íslenska!".. hehe.. gaman hjá þeim
Hræsni og aftur hræsni, ég verð að láta þetta frá mér í þetta eina sinn. Það er er alveg á hreinu að allir þeir sem eru að þrasa útaf þessu drullu eurovision kjaftæði myndu þvílíkt verða glaðir og stoltir af henni Birgittu sinni ef hún fer í efstu 5 sætin í þessari plebba keppni. Þá kemur annað hljóð í skrokkana, djöfuls tvískinnungur alltaf hreint.
6.3.03
Sólarhringur fjölskyldunnar. Í gær kom Dósla með Belluna litlu stóru sterku. alveg briljant heimsókn þar sem gesturinn kom með veitingarnar með sér, enda varla annað hægt þegar til min er komið (vælvæl) So birtust mamma og pabbi uppúr þurru, alveg að frjósa úr kulda eftir að hafa séð Nóa albínóa. Svo í dag kaffi með Ölvu frænku, og Heisi frændi var líka þarna líka órakaður og að kikna undan nýfenginni ábyrgð á öðru lífi
5.3.03
I´m not lazy, I´m just happy doing nothing Þessu stel ég og geri að mínu mottó. Er nokkur annar en Unnur sem veit hvaðan ég stel þessu..?
Veit engin svarið?
Meira vesenið á krakkgreyjunum í dag, engin skóli og þau eru að þvælast um allt syngjandi fyrir misfúla verslunareigendur. En ég held að nú sé að komast eikkvað sístem á þennan fastelavn/haloween hybrid dag, búðafólkið flest með eikkvað nammi handa þeim. Raunar eru krakkarnir farnir að færa sig uppá skaftið og eru að banka uppá hjá fólki og syngja fyrir nammi.. veit ekki hversu gott það er. Í danmörku þá gaf fólk krökkunum oft peninga, þa' er nú ekki snjallt í landi þar sem börn mega labba inní hvaða verslun sem er og kaupa sígarettur og áfengi
Hörður er Jason Vorhees í dag og Una er norn. Einver sem veit hver Jason Vorheese er? Svarið og þið fáið ekki rassgat í verðlaun nema ánæjuna.
4.3.03
Það er fólk án persónuleika sem tekur persónuleikapróf á netinu, Þar hafiði það!
Í gær fór ég í bæin með GS og krökkunum hennar og í dag fór ég í bæin með Fender, hvusslags líf er þetta, endalaus bæjarþvælingur. Hamsturinn er búin að bryðja búrið sitt á alla kanta svo nú er það meira og minn sprungið.
Já og ekki er það svo vel að ég geymi karlmenn bakvið ískápin heldur er það bara exinn sem ruddi ískápnum úr stað, en svo þegar rafmagnið fór í hass þá lagaði ég það sjálf sko, jájá
Djöfull er blogger leiðinlegur í dag!
Yes its nice to have a man around the house, búin að losna við drulluna sem var að stinka bak við ískápinn.
Búin að fikta eikkvað við hlekkina, úff kvaðetta tekur ekkað mikin tíma sona fikt.. og til hvers! veit það ekki, ég veit það eitt að ég veit ekki neitt
3.3.03
merkið í könnunina strax! ég er forvitin.. og vó hver er þessi nagli með með meiren 50.. já eða naglína..
Það glitti í andlit mitt á skjánum í gær, var þarna á ljósmynd sem tekin vara í ammæli Ham. Það var afskaplega interessant kvöld man ég. Ammælið var haldið í kópavogi á búllubar. Nema hvað að þegar klukkan var 3 og ég fattaði að barinn var búin að loka ( einsog tíðkaðist þá), að þá bilaðist ég alveg, enda var tilhugsuninm um að fá ekki meira að drekka óbærileg. Sem er spaugilegt þar sem ég var býsna ölvuð, já kannksi ofurölvi bara! Í sama mund þá sé ég að góðvinur okkar hjóna situr og er að borða pizzu við eitt borðið, herra Proppé sat á móti honum. Þegar ég kom að borðinu og ætlaði að hrifsa til mín pizzusneið þá brást vinur okkar ókvæða við ( enda ofuölvi líka blessunin) og kallaði mig öllum illum nöfnum, aðalega þó drusla og tík. Ég mátti ekki við þessu og tók stóra bjórkrús (svona þykka með haldi, ekki glas) og henti henni í pizzueigandan. Ekki tókst þetta betur en svo að krúsin lenti á herra Proppé og mátti engu muna að höfuðhögg hlytist af, en ég held að hann hafi borið hönd fyrir og þessvegna brotnaði úrið hanns. Þetta ofbeldi af minni hálfi orsakaði almennan uppsteyt og læti, og var mér á endanum hent út á götu öskrandi og gargandi og sparkandi. Þá varnú gaman að lifa
2.3.03
Jú þetta var sneðugt kvöld. Við Flosi ætluðum að sjá cleaning women en aþþi við vorum eikkvað svo sociable þá fórum við fyrst til Frú Fender sem gerði það að verkum að við komum of seint á tónleika. Eeeeen við skunduðum bara á Brennsluna til að huxa málið, alltaf gaman að njóta þjónustunnar þar hjá henni S. Fórum svo og börðum augum dreggjarnar í hófi VGrænna og löbbuðum með þessum gaur og einni frú á Ölstofuna. Þar var þessi skemmtilegi Slingari kunningi okkar, og frændin og Fender og fleiri og fleiri og svo er annar frændi að vinna á 22 og það kom sér nú vel seinna þegar ég vildi aðeins kasta kveðju á Ölvu sem vill ílengjast þar um helgar. og já eikkur sá mig..úúú.
Já það var líka fáránlegt magn af gítarleikurum að skemmta sér í gær.
